Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Ráðgóðir kennarar

22.september 2010

  • Staðsetning: Menntasetrið við Lækinn
  • Tími: kl. 13:00 - 16:00
  • Verð: Fagaðili: 8.800 kr.
  • Skráningartímabil: 10.ágúst - 15.september 2010

Staðsetning

Námskeiðið er haldið í Miðstöð símenntunar í Menntasetrinu við lækinn og um fjarfundabúnað til Háskólans á Akureyri. Þátttakendur á Akureyri skrái sig hér.

Mögulegt er að senda til fleiri staða, ef óskað er.

Námskeið í fjarfundi

Óskir þú eftir að sækja námskeið um fjarfundabúnað er nauðsynlegt að tilgreina tengilið á hverju svæði. Best er að hafa samband við næstu fræðslu- eða símenntunarmiðstöð og kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi þar og fá upplýsingar um tengilið. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.

Vinsamlegast setjið í athugasemdir í skráningarformi námskeiðsins, ósk um að sitja námskeiðið í fjarfundi, með upplýsingum um tengilið, netfang tengiliðar og staðsetningu. Tengiliður fær senda IP tölu nokkrum dögun fyrir námskeið og er gert ráð fyrir að hann hringi inn um 15 mínútum áður en það hefst.

Nauðsynlegt er að allir þátttakendur skrái sig.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað grunnskólakennurum og öðrum starfsmönnum grunnskóla sem eru með umsjón barna með röskun á einhverfurófi.

Markmið

Efla sjálfstraust kennara og annarra starfsmanna skóla til að takast á við hegðun nemenda.

Efni og vinnulag

Börn með þroskaraskanir eru líklegri en önnur börn til að sýna erfiða hegðun. Það gerir kennslu þeirra oft á tíðum krefjandi. Kennarar eyða miklum tíma í að stjórna hegðun og það tekur áherslu frá náminu. Hvernig er hægt að fyrirbyggja það? Á námskeiðinu verða kenndar hagnýtar leiðir til árangurs. Æskilegt er að þeir kennarar eða starfsmenn grunnskóla sem eru að nota umbunarkerfi (stjörnukerfi, hvatakerfi) komi með þau á námskeiðið. Námskeiðið byggist á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar.

Drög að dagskrá

Hegðun barna á einhverfurófi
Æskileg eða óæskileg hegðun?
Hvernig aukum við jákvæðni nemenda?
Umbunarkerfi í skólum – kostir og gallar
Einstaklingsmiðuð umbunarkerfi eða umbunarkerfi fyrir bekkinn?
Útfærslur á umbunarkerfum í grunnskólanum
Umræður

Umsjón

Sigurrós Jóhannsdóttir, sálfræðingur



Þetta vefsvæði byggir á Eplica