Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ætlað þeim sem hafa lokið grunnnámskeiði um einhverfu og starfa við skipulagningu og framkvæmd daglegrar meðferðar og kennslu barna með einhverfu. Einnig ætlað aðstandendum.
Helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennsla nýrrar færni og hvernig unnt er að minnka óæskilega hegðun. Einnig er gerð grein fyrir rannsóknum á árangri og fjallað um framkvæmd meðferðar og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og greina frá þátttöku sinni í umfangsmikilli atferlismeðferð. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og myndböndum af börnum á mismunandi stigum meðferðarinnar.
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í fötlunum barna.