Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Einhverfa og aðrar raskanir á einhverfurófi

Grunnnámskeið

12.maí 2010

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 09:00 - 16:00
  • Verð: 14.400 kr. fyrir fagfólk. 3.600 kr. fyrir aðstandendur/háskólanema.
  • Skráningartímabil: 1.mars - 5.maí 2010

Hverjum er námskeiðið ætlað? 

Námskeiðið er ætlað aðstandendum og fagfólki á sviði uppeldis og menntunar sem sinna þjálfun og meðferð barna með einhverfu og skyldar þroskaraskanir.

Markmið

Efla skilning og þekkingu fagfólks á þörfum barna með einhverfu og auka gæði þeirrar þjónustu sem þegar er veitt. Efla færni til að byggja upp markvissa íhlutun.

Efni og vinnulag

Raskanir á einhverfurófi, greining einhverfu, álag í uppeldi og starfi, fjölskyldumiðuð þjónusta, snemmtæk íhlutun fyrir börn með einhverfu og áherslur í starfi með börnum á grunnskólaaldri. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum, en einnig eru sýnd íslensk fræðslumyndbönd um einhverfu.

Leiðbeinendur

Ingólfur Einarsson, barnalæknir
Guðrún Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi
Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfr. í fötlunum barna
Sigrún Hjartardóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi








Þetta vefsvæði byggir á Eplica