Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Skipulögð kennsla

Byggt á hugmyndafræði TEACCH líkansins.

19.apríl - 21.apríl 2010

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 09:00 - 16:00
  • Verð: Fagaðili: 32.800 kr. Aðstandandi: 9.900 kr. Háskólanemi: 9.900 kr.
  • Skráningartímabil: 1.mars - 12.apríl 2010

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Ætlað þeim sem hafa lokið grunnnámskeiði um einhverfu, og eru aðstandendur eða starfa með börnum og ungmennum með einhverfu, í skólum og á sambýlum, eða hvar sem einstaklingar með einhverfu búa og starfa.

Markmið:

Að þátttakendur fái innsýn í hugmyndafræði TEACCH kerfisins og læri grunnatriði skipulagðrar kennslu og vinnubragða. Geti tekið þátt í uppbyggingu og notkun skipulagsins í skóla eða vinnustað og/eða á heimilinu.

Efni og vinnulag:

Kynning á TEACCH kerfinu og skipulagðri kennslu og vinnubrögðum, boðskipti og samskiptaörðugleikar, félagsleg aðlögun og meðferð hegðunarerfiðleika. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, myndböndum, umræðum og þjálfun þátttakenda. Skipt er upp í hópa og útbúin vinnusvæði þar sem þátttakendur fá að æfa sig með nemendum á ólíkum aldri, sem eru öll með einhverfu.

Leiðbeinendur:

Áslaug Melax, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi
Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi
Svanhildur Svavarsdóttir, boðskiptafræðingur og einhverfuráðgjafi



Þetta vefsvæði byggir á Eplica