Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Jákvæðar leiðir til bættrar hegðunar

22.mars - 23.mars 2010

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 09:00 - 16:00
  • Verð: Fagaðili: 24.800 kr. Aðstandandi: 7.200 kr. Háskólanemi: 7.200 kr.
  • Skráningartímabil: 15.janúar - 15.mars 2010
 

Hverjum ætlað?

Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna með börnum og ungmennum með þroskafrávik og fatlanir, aðstandendum fatlaðra barna og öllum sem áhuga hafa.

Innihald

Námskeiðið byggir á gömlum grunni, þar sem það er unnið út frá námskeiðinu “Meðferð hegðunarerfiðleika” sem haldið hefur verið á vegum GRR mörg undanfarin ár. Í þessu námskeiði hefur verið tekið það sem reyndist vel og bætt við öðru sem nýtist betur á vettvangi í vinnu með og umönnun barna með þroskafrávik og fatlanir. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á það að auka skilning þátttakenda á hegðunarvanda og skýringum á hegðunarvanda. Fjallað verður um hvernig standa skuli að mati á erfiðri hegðun með aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar og hvernig mat leiðir til einstaklingsmiðaðra inngripa. Talað verður um hvernig beita má jákvæðri styrkingu á kerfisbundinn og árangursríkan hátt og hvernig styrking er notuð til þess að auka æskilega hegðun í stað óæskilegrar hegðunar. Lögð verður áhersla á að framsetning og efnistök leiði til færni þátttakenda sem nýtist í vinnu þeirra og/eða umönnun barna með þroskafrávik og fötlun. Með auknum skilningi skapast leiðir til að vinna að jákvæðum leiðum til að fyrirbyggja hegðunarvanda. Fyrirlestrar verða í bland við verkefnavinnu í hópum og umræður, undir stjórn fyrirlesara

Markmið

  • Að auka skilning þátttakenda á hvað kemur hegðunarvanda af stað og hvað viðheldur hegðunarvanda
  • Að auka færni þátttakenda til að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að draga úr líkum á hegðunarvanda
  • Að kynna fyrir þátttakendum hvernig skilningur á hegðunarvanda leiði til þess að beita megi jákvæðum aðferðum til að bæta hegðun.

Umsjón:

Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur
Atli F. Magnússon, atferlisfræðingur



Þetta vefsvæði byggir á Eplica