Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Að upplýsa einstakling á einhverfurófi um röskunina

Framhaldsnámskeið um Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir.

14.apríl 2010

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 13:00 - 16:00
  • Verð: 8.800 kr. fyrir fagfólk. 2.900 kr. fyrir aðstandendur/háskólanema.
  • Skráningartímabil: 11.janúar - 7.apríl 2010
 

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað foreldrum og kennurum barna og unglinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi. Æskilegt er að þátttakendur hafi sótt námskeiðið: Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi.

Námskeiðslýsing

Börn og ungmenni sem eru með röskun á einhverfurófi og jafnframt góðan vitsmunaþroska spyrja mörg hver beinna eða óbeinna spurninga um ástand sitt sem þarf að bregðast við. Á þessu námskeiði verður skoðað hvaða leiðir sé hægt að fara þegar útskýra á ástandið fyrir einstaklingum sem hafa greinst með röskunina og eru á  mismunandi aldri og þroskastigi. Fjallað verður um rétt einstaklingsins til upplýsinga og velt upp ýmsum spurningum eins og m.a. hvað mæli með því að útskýra ástandið fyrir viðkomandi, hvenær það sé tímabært, hver ætti að taka það að sér og hvort það sé ráðlegt í öllum tilfellum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, verkefni, hópavinna og umræður.

Leiðbeinandi

Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í fötlunum barna

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica