Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Tákn með tali

Grunnnámskeið

18.mars 2010

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 09:00 - 16:00
  • Verð: 14.400 kr. fyrir fagfólk. 3.600 kr. fyrir aðstandendur/háskólanema.
  • Skráningartímabil: 11.janúar - 11.mars 2010

Hvað er tákn með tali?

Tákn með tali (TMT) er tjáskiptaaðferð, sem er ætluð heyrandi fólki, bæði börnum og fullorðnum, sem eiga við mál- og talörðugleika að stríða. Tákn með tali hefur einnig nýst börnum með erlent móðurmál vel, sem eru að aðlagast nýju málumhverfi. Jafnframt hefur tákn með tali verið notað í auknum mæli til almennrar málörvunar fyrir ung börn bæði hér á landi og erlendis.

Tákn með tali byggist á því að tákn, látbragð, svipbrigði og bendingar eru notuð á ákveðinn hátt samhliða tali. Tilgangurinn er m.a. að gera málumhverfið skýrara og auðvelda tjáningu. Bætt tjáning hefur jákvæð áhrif á hegðun og líðan og stuðlar að sterkari sjálfsmynd. Misjafnt er hvenær byrjað er að kenna tákn með tali en í mörgum tilvikum er það notað með börnum allt frá fæðingu.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað þeim sem áhuga hafa á að kynna sér tákn með tali tjáskiptaaðferðina og fjölbreytta notkun hennar. Sérstaklega á það við um starfsfólk leikskóla, grunnskóla og annara stofnana þar sem þörf er á skýru málumhverfi. Ástæður geta t.d. verið seinkaður málþroski, fötlun eða fjölmenningarlegt málumhverfi

Viðfangsefni

Fjallað verður um hugmyndafræði tákna með tali. Kennd verða tákn sem nýtast í daglegu starfi með TMT-notendum á öllum aldri. Kynntar verð hugmyndir og leiðir til að örva tjáskipti með táknum með tali. Gerðar verða æfingar og verkefni.

Vinnulag

Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, kennslu tákna, æfingum og verkefnum. Áhersla er á virkni þátttakenda á námskeiðinu og að þeir deili með sér hugmyndum og verkefnum. 

Markmið

Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:

  • - þekkja hugmyndafræðina sem liggur að baki TMT
  • - hafa umtalsverðan táknafjölda á valdi sínu
  • - geta notað TMT í starfi
  • - geta verið sjálfstæðir í vinnubrögðum með TMT

Umsjón

Sigrún Grendal Magnúsdóttir talmeinafræðingur








Þetta vefsvæði byggir á Eplica