Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Félagsfærni og þátttaka 6-11 ára barna með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir

Námskeið fyrir kennara

10.mars 2010

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 13:00 - 17:00
  • Verð: Fagaðili: 10.300 kr.
  • Skráningartímabil: 11.janúar - 5.mars 2010
 

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað kennurum, þroskaþjálfum, öðru starfsfólki í grunnskólum og þeim sem koma að þjónustu við nemendur á aldrinum 6-11 ára með Aspergersheilkenni eða svipaða röskun á einhverfurófi. Gert er ráð fyrir að þeir sem sækja þetta námskeið hafi lokið grunnnámskeiði.

Markmið

Að efla þekkingu á sérstökum þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir. Áhersla verður á þátttöku og færni við ýmis viðfangsefni sem tengjast námi og félagslegum samskiptum í skólanum. Ennfremur á viðurkenndar leiðir í kennslu og þjálfun félagsfærni hjá þessum nemendum. Að þátttakendur verði betur í stakk búnir til að mæta þörfum nemenda á markvissan hátt með því að nýta einstaklingsnámskrá og þverfaglegt samstarf. Að skapa vettvang fyrir fagfólk sem fæst við sambærileg verkefni.

Efni

Fjallað verður stuttlega um einhverfurófið og hvað er líkt og ólíkt með Aspergersheilkenni og einhverfu. Ennfremur um félagslega færni og skilning, skólafærni, einstaklingsnámskrá og yfirfærslu náms. Kynntar verða leiðir til að meta og vinna með ofangreinda þætti. Tekið er mið af þörfum barna á aldrinum 6-11 ára í grunnskóla. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum hópavinnu og umræðum.

Umsjón

Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og Sigurrós Jóhannsdóttir sálfræðingur.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica