Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Félagsfærni og þátttaka 12-18 ára barna með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir

Námskeið fyrir kennara

24.mars 2010

  • Staðsetning:
  • Tími: kl. 13:00 - 17:00
  • Verð: 10.300 kr. fyrir fagfólk.
  • Skráningartímabil: 11.janúar - 19.mars 2010
 

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Námskeiðið er ætlað kennurum, öðru starfsfólki í grunn- og framhaldssskólum og þeim sem koma að þjónustu við 12-18 ára nemendur með Aspergersheilkenni eða svipaða röskun á einhverfurófi. Gert er ráð fyrir að þeir sem sækja þetta námskeið hafi lokið grunnnámskeiði.

Markmið

Að efla þekkingu á sérstökum þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir. Áhersla verður á þátttöku og færni við ýmis viðfangsefni sem tengjast þátttöku í námi og félagslegum samskiptum, sjálfsmynd og kynheilbrigði. Ennfremur á viðurkenndar leiðir í kennslu og þjálfun félagsfærni hjá þessum nemendum. Að þátttakendur verði betur í stakk búnir til að mæta þörfum nemenda á markvissan hátt með því að nýta einstaklingsáætlanir, félagsleg þjónustuúrræði og þverfaglegt samstarf. Að skapa vetttvang fyrir fagfólk sem fæst við sambærileg verkefni.

Efni

Fjallað verður stuttlega um einhverfurófið og hvað er líkt og ólíkt með Aspergersheilkenni og einhverfu. Ennfremur um félagslega færni og skilning, einstaklingsáætlanir, yfirfærslu náms og færni og þátttöku í daglegu lífi. Kynntar verða leiðir til að meta og vinna með ofangreinda þætti. Tekið er mið af þörfum barna og unglinga á aldrinum 12-18 ára. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum hópavinnu og umræðum.

Umsjón

Laufey I Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi

ATH:

Mögulegt er að senda námskeiðið jafnframt út um fjarfundabúnað.

Þátttakendur utan af landi skrá sig hér á sama hátt og aðrir og greiða sama gjald. Nauðsynlegt er að það komi fram í athugasemdum, ef óskað er eftir að sitja námskeiðið í gegnum fjarfundabúnað og frá hvaða stað.

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica