Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Námskeið

Atferlisþjálfun fyrir börn með þroskafrávik

7.júní - 8.júní 2012

  • Staðsetning: Gerðuberg
  • Tími: kl. 09:00 - 16:00
  • Verð: Fagaðili: 28.500 kr. Aðstandandi: 8.500 kr.
  • Skráningartímabil: Biðlisti

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Atferlisþjálfun fyrir börn með þroskafrávik lýkur 23 maí 2012. Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.

Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.

Hverjum er námskeiðið ætlað?

Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem starfa við skipulagningu og framkvæmd daglegrar atferlisíhlutunar barna með frávik í þroska.

Efni og vinnulag

Helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennsla nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun. Einnig er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins, um daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og greina frá þátttöku sinni í umfangsmikilli atferlisíhlutun/atferlisþjálfun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.

Umsjón

Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í fötlunum barna.                                                                                                                     Atli F. Magnússon, atferlisfræðingur.                                                                                                                                                                                 María Sigurjónsdóttir, þroskaþjálfi og ráðgjafi í atferlisþjálfun.


Skráning á námskeiðið

Þáttakandi
Greiðandi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica