Beint í leiðarkerfi vefsins.
Námskeiðið er ætlað foreldrum 12-18 ára barna og unglinga sem eru í grunn- og framhaldssskóla og eru með Aspergersheilkenni eða svipaða röskun á einhverfurófi. Gert er ráð fyrir að þeir sem sækja þetta námskeið hafi lokið grunnnámskeiði.
Að efla þekkingu á sérstökum þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir. Áhersla verður á þátttöku og færni við ýmis viðfangsefni sem tengjast þátttöku í námi og félagslegum samskiptum, sjálfsmynd og kynheilbrigði. Ennfremur á viðurkenndar leiðir í kennslu og þjálfun félagsfærni hjá þessum nemendum. Að þátttakendur verði betur í stakk búnir til að mæta þörfum barna og unglinga á markvissan hátt með því að nýta einstaklingsáætlanir, félagsleg þjónustuúrræði og þverfaglegt samstarf. Að skapa vetttvang fyrir foreldra og aðstandendur sem fást við sambærileg verkefni.
Fjallað verður stuttlega um einhverfurófið og hvað er líkt og ólíkt með Aspergersheilkenni og einhverfu. Ennfremur um félagslega færni og skilning, einstaklingsáætlanir, yfirfærslu náms og færni og þátttöku í daglegu lífi. Kynntar verða leiðir til að meta og vinna með ofangreinda þætti. Tekið er mið af þörfum barna og unglinga á aldrinum 12-18 ára. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum hópavinnu og umræðum.
Laufey I. Gunnarsdóttir þroskaþjálfi og Þóra Leósdóttir iðjuþjálfi.