Beint í leiðarkerfi vefsins.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Atferlisþjálfun fyrir börn með þroskafrávik lýkur 29.febrúar 2012. Greiðsluseðlar verða þá sendir í innheimtu og þurfa þátttakendur að vera búnir að greiða fyrir eindaga sem er u.þ.b. viku fyrir námskeið.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á fraedsla@greining.is.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.Helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennsla nýrrar færni og hvernig unnt er að minnka óæskilega hegðun. Einnig er gerð grein fyrir rannsóknum á árangri og fjallað um framkvæmd meðferðar og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og greina frá þátttöku sinni í umfangsmikilli atferlismeðferð. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og myndböndum af börnum á mismunandi stigum meðferðarinnar.
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í fötlunum barna. Atli F. Magnússon, atferlisfræðingur. María Sigurjónsdóttir, þroskaþjálfi og ráðgjafi í atferlisþjálfun.