Tákn með tali (TMT) – grunnnámskeið
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað þeim sem áhuga hafa á að kynna sér TMT tjáskiptaaðferðina og fjölbreytta notkun hennar. Sérstaklega á það við um starfsfólk leikskóla, grunnskóla og annara stofnana þar sem þörf er á skýru málumhverfi. Ástæður geta til dæmis verið seinkaður málþroski, fötlun eða fjölmenningarlegt málumhverfi.
Hámarksfjöldi þátttakenda
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 30.
Lýsing
TMT er tjáskiptaaðferð sem er ætluð heyrandi fólki, bæði börnum og fullorðnum sem eiga við mál- og talörðugleika að stríða. Aðferðin hefur einnig nýst börnum vel sem eru með erlent móðurmál og þurfa að aðlagast nýju málumhverfi. Jafnframt hefur TMT verið notað í auknum mæli til almennrar málörvunar fyrir ung börn bæði hér á landi og erlendis.
TMT byggist á því að tákn, látbragð, svipbrigði og bendingar eru notuð á ákveðinn hátt samhliða tali. Tilgangurinn er meðal annars að gera málumhverfið skýrara og auðvelda tjáningu. Bætt tjáning hefur jákvæð áhrif á hegðun og líðan og stuðlar að sterkari sjálfsmynd. Misjafnt er hvenær byrjað er að kenna tákn með tali en í mörgum tilvikum er það notað með börnum allt frá fæðingu.
Fjallað verður um hugmyndafræði TMT. Kennd verða tákn sem nýtast í daglegu starfi með notendum á öllum aldri. Kynntar verða hugmyndir og leiðir til að örva tjáskipti með TMT. Gerðar verða æfingar og verkefni. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, kennslu tákna, æfingum og verkefnum. Áhersla er á virkni þátttakenda á námskeiðinu og að þeir deili með sér hugmyndum og verkefnum.
Markmið
Að þátttakendur:
- þekki hugmyndafræðina sem liggur að baki TMT
- hafi umtalsverðan táknafjölda á valdi sínu
- geti notað TMT í starfi
- geti verið sjálfstæðir í vinnubrögðum með TMT
Umsjón
Sigrún Grendal Magnúsdóttir talmeinafræðingur.