Skólaþing sveitarfélaga 2017

Skráning er hafin á Skólaþing sveitarfélaga en það verður haldið 6. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „Á ég að gera það?“

Tvö knýjandi viðfangsefni verða tekin til umfjöllunar á þinginu. Tökum nýjan kúrs. Fyrir hádegi verður fjallað um úttekt Evrópumiðstöðvar á framkvæmd opinberrar menntastefnu hér á landi, hverjir og með hvaða hætti skuli brugðist við niðurstöðum hennar. Hvar eru kennararnir? Eftir hádegi verður sjónum beint að nýliðunarvanda í kennarastétt, hvaða leiðir séu færar til þess að bregðast við honum og undir hverjum það sé komið.

Dagskrá og skráningu má finna hér

*Fréttin er fengin af vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga