Ráðstefna Geðhjálpar: Börnin okkar!

Ráðstefna á vegum Geðhjálpar 17. október
Ráðstefna á vegum Geðhjálpar 17. október

Athygli er vakin á ráðstefnu Geðhjálpar „Börnin okkar“ á Grand Hótel Reykjavík þann 17. október næstkomandi.

Á ráðstefnunni verður veitt yfirsýn yfir geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni upp að 24 ára, hvað megi betur fara og hvaða leiðir séu færar til úrbóta í geðheilbrigðisþjónustu við þennan aldurshóp á Íslandi. Í framhaldi af ráðstefunni mun Geðhjálp færa heilbrigðisráðherra lista yfir helstu forgangsverkefni á sviði geðheilbrigðisþjónustu við börn á Íslandi.

Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um átak norskra yfirvalda í geðheilbrigðisþjónustu við ungabörn, hagi barna foreldra með geðrofssjúkdóma, áhrif áfalla í æsku á geðheilbrigði á fullorðinsárum, aðgengi að sálfræðiþjónustu, áskoranir í barnavernd, sjálfskaðahegðun unglinga og fjölgun ungra karlmanna á örorku svo dæmi séu nefnd.

Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér
Viðburður á facebooksíðu Geðhjálpar, smellið hér

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið með því að senda tölvupóst með nafni þátttakenda og nafni og kennitölu greiðanda í gegnum netfangið verkefnisstjori@gedhjalp.is Aðgangseyrir er kr. 3.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp.