Vorráðstefna Greiningarstöðvar 2016 - skráningarfrestur framlengdur

Vorráðstefna
Vorráðstefna

Skráning á vorráðstefnu Greiningar- og ráðgjafarstöðar ríkisins sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík 12. og 13. maí næst komandi er í fullum gangi þessa dagana og skráningarfrestur hefur verið framlengdur til hádegis föstudaginn 6. maí. Yfirskrift ráðstefnunnar er Litróf fatlana - Sjaldan er ein báran stök.

Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Fjallað verður um helstu fötlunarhópana og fylgiraskanir þeirra auk þess sem nýjungar í erfðafræðirannsóknum og áskoranir sem tengjast sjaldgæfum fötlunum verða kynntar. Sjónum verður einnig beint að íhlutun og úrræðum sem miða að aukinni færni og bættum lífsgæðum fyrir bæði fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Við vonumst til að sem flestir gefi sér tíma til að staldra við í Miðgarði Grand Hótels að lokinni dagskránni þann 12. maí, njóta samveru og hlusta á ljúfa tóna því vorráðstefnan er ekki síst vettvangur fyrir óformlegt spjall og kynni þátttakenda.

Dagskrá ráðstefnunnar má skoða hér.

Skráning fer fram hér.