Vorráðstefna: Frestur til að skila inn kynningum er til 9. mars!

Frestur til að skila inn kynningum á íslenskum rannsóknarverkefnum, þróunarverkefnum og nýjungum í starfi á sviði fatlana er til 9. mars.

Árleg vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldin 7. og 8. maí 2015. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Fötluð börn verða fullorðin“.

Eins og áður verður þar skapaður vettvangur fyrir fagfólk til að kynna ný íslensk rannsóknar- og þróunarverkefni, ásamt nýjungum í starfi á sviði fatlana.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins býður aðstandendum slíkra verkefna að kynna þau í málstofum eða á veggspjöldum. Ábendingar um áhugaverð verkefni eru einnig vel þegnar.

Óskað er eftir eftirfarandi upplýsingum:

  1. Titill verkefnis
  2. Nafn/nöfn höfunda
  3. Nafn þess sem flytur kynninguna, starfsheiti, vinnustaður og netfang
  4. Stutt lýsing á verkefni, markmiði, leiðum og helstu niðurstöðum.

Hámarks lengd á innsendu efni miðast við 2.000 slög (með bilum) með letrinu Arial 10p í word skjali. 

Tillögur skulu sendar í viðhengi á netfangið: gudny@greining.is fyrir 9. mars 2015 merkt: Kynning 2015.