TMF Tölvumiðstöð veitir ráðgjöf í notkun tækni

TMF Tölvumiðstöð er til húsa að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík og þangað geta foreldrar, fatlað fólk og fagfólk leitað ráðgjafar um ýmis konar tæknilausnir. Sem dæmi má nefna ráðgjöf og leiðsögn við að finna öpp, forrit og búnað sem gagnast börnum og unglingum í námi, leik og þjálfun. Þjónustan er ókeypis og best er að senda tölvupóst og óska eftir tíma á netfangið: sigrun@tmf.is. Einnig er boðið upp á margvísleg námskeið um tækni og notkun hennar.

Hér má finna kynningarbréf um TMF Tölvumiðstöð

Hér má finna slóð á heimasíðu miðstöðvarinnar