Styrktarsjóður til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson styrkir fjölda starfsmanna

Frá afhendingu
Frá afhendingu

Þann 13. júní s.l. voru veittir styrkir úr Styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson. Styrktarsjóðurinn var stofnaður 8. júní 1995, en þann dag hefði Þorsteinn Helgi orðið 5 ára gamall. Hann lést 20. janúar 1995.

Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til stofnfé. Sjóðurinn aflar fjár með sölu minningarkorta.

Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á þroskaröskunum og fötlunum barna með því að styrkja fagfólk til framhaldsmenntunar og rannsóknarstarfa. Árlega eru veittir styrkir úr sjóðnum, oftast á fæðingardegi Þorsteins Helga, þann 8. júní.

Starfsfólk Greiningarstöðvar hefur að jafnaði forgang að styrkjum úr sjóðnum. Styrk hlutu í ár Aðalheiður Una Narfadóttir, Áslaug Melax, Guðrún Þorsteinsdóttir, Katrín Einarsdóttir, María Jónsdóttir, María Sigurjónsdóttir, Hafdís Lilja Gunnarsdóttir, Unnur Árnadóttir og Þórunn Þórarinsdóttir. 

Að lokinni styrkveitingu afhenti Evald Sæmundsen fjölskyldunni eintak af bókinni Litróf einhverfunnar. Bókin kom út í maí og er skrifuð af starfsmönnum stofnunarinnar sem margir hverjir hafa hlotið styrk úr styrktarsjóðinum til að afla sér frekari þekkingar í sínu fagi.

Mynd: frá vinstri Helgi Freyr Ásgeirsson, Ásgeir Þorsteinsson, Áslaug Melax, Þórunn Þórarinsdóttir, Aðalheiður Una Narfadóttir, María Sigurjónsdóttir, Hafdís Lilja Gunnarsdóttir, María Jónsdóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Þorsteinsdóttur, Katrínu Einarsdóttur og Unni Árnadóttir.