Paralympic dagurinn 21. október 2017

Íþróttafélag fatlaðra
Íþróttafélag fatlaðra

Paralympic dagurinn er kynningardagur á íþróttastarfi fatlaðra á Íslandi. Að þessu sinni er hann laugardaginn 21. október og líkt og síðustu ár fer hann fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Að auki hefur nú verið bætt við sundkynningu og fer hún fram í innilauginni í Laugardal og hefst sú kynning kl. 11:00.

Dagskráin í frjálsíþróttahöllinni hefst kl. 13:00 og stendur fram eftir degi.

Við hvetjum alla sem hafa hug á að kynna sér þær fjölbreyttu íþróttagreinar sem í boði eru fyrir fatlaða á Íslandi. Allar nánari upplýsingar má finna hér.