Afmælisráðstefna Þroskahjálpar

Afmælisráðstefna Þroskahjálpar
Afmælisráðstefna Þroskahjálpar

Þann 2. desember halda Landssamtökin Þroskahjálp ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík. Tilefnið er 40 ára afmæli samtakannna og alþjóðadagur fatlaðs fólks sem er 3. desember. Ráðstefnan stendur frá kl. 12:30 - 16:00. Flutt verða nokkur mjög áhugaverð erindi sem fjalla með einum eða öðrum hætti um hvað er samfélag fyrir alla þar sem allir fá tækifæri til að lifa góðu lífi og hvernig getum við öll saman skapað slíkt samfélag.

Í tengslum við ráðstefnuna verða „Múrbrjótar“ samtakanna afhentir en það er viðurkenning sem Landssamtökin Þroskahjálp veitir aðilum sem að mati samtakanna hafa brotið niður múra í réttindamálum fatlaðs fólks og viðhorfum til þess.

Þessi áhugverða afmælisráðstefna er ókeypis og öllum opin og eru allir hvattir til að koma, fylgjast með, og taka þátt í henni, vera með þegar Múrbrjótarnir verða afhentir, þiggja léttar veitingar að því loknu og gleðjast saman í tilefni af fertugsafmæli Þroskahjálpar.

Dagskrá og skráning hér