Orsakir einhverfu
Orsakir geta verið mjög fjölbreytilegar. Erfðir eru þó taldar skýra stærstan hluta þeirra, en það álit byggir á tvíburarannsóknum og fjölskyldurannsóknum. Líkur á því að sömu foreldrar, sem eignast hafa barn með einhverfu, eignist annað barn með einhverfu eru ekki miklar. Hins vegar eru þær margfaldar miðað við þá foreldra sem ekki hafa eignast barn með einhverfu.

