Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Framvinda og horfur

23.6.2009

Einhverfa er oft  ávísun á fötlun til lífstíðar. Framvinda einhverfu getur verið mjög breytileg og ýmsu háð, þar með talið heilsufari, magni og gæðum þjónustu, vitsmunaþroska, hvort einstaklingurinn hafi  náð tökum á tali eða hvort hann þróar með sér flogaveiki svo dæmi séu tekin. Almennt virðast einkenni einhverfu minnka lítillega á leikskólaárunum og verða enn vægari í átt að unglingsárunum. Mikill einstaklingsmunur er  á þessu og dæmi eru um hið gagnstæða.

Rannsóknir sýna þó að á milli 3-25% barna, sem greinast með röskun á einhverfurófi, uppfylla síðar ekki lengur skilyrði greiningar og mælast með vitsmunaþroska og aðlögun innan meðalmarka. Ýmsar rannsóknir á árangri meðferðar, þjálfunar og kennslu hafa verið gerðar í gegnum tíðina og talsvert er vitað um eiginleika árangursríkrar íhlutunar. Hins vegar skortir enn nokkuð á þekkingu þannig að hægt sé að segja fyrir um hvaða aðferð gagnast tilteknum einstaklingi eða fjölskyldu best, í hvaða magni og hve lengi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica