Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Einkenni

Í félagslegu samspili verður skortur á augnsambandi oftast til að vekja fólk til umhugsunar, eða þegar samskipti við jafnaldra þróast ekki með eðlilegum hætti. Þá koma fíngerðari þættir samskipta einnig við sögu, eins og frumkvæði til samskipta, sérkennileg viðbrögð við fólki og sérkennileg svipbrigði. Það sem skortir á í boðskiptum eru oft bendingar og látbragð, eftirherma, ímyndunarleikur og skortur á gagnkvæmni í samræðum (þ.e. að laga sig að viðmælanda). Auk þess eru ýmis sérkenni í tali, svo sem ýmis konar endurtekningar og stagl, fornafnarugl, nýyrðasmíð eða skrítin máltjáning.

Sérkennileg og áráttukennd hegðun getur komið fram í þröngu eða sérkennilegu áhugasviði, sem þróast lítið yfir tíma og þar sem áhuginn er svo ákafur að hann getur hindrað eðlileg samskipti við aðra. Þá er oft einnig um að ræða knýjandi þörf til að segja hluti á ákveðin hátt og stundum að aðrir svari sömuleiðis alltaf eins. Eins geta athafnir verið í óvenju föstu kerfi og ef ekki er hægt að framkvæma þær í ákveðinni röð veldur það uppnámi, allt frá pirringi til bræðiskasta. Sérkennilegar, endurteknar, handahreyfingar, eða flóknar hreyfingar með öllum líkamanum koma við sögu, sem og einhæf eða óvenjuleg notkun hluta og óvenjulegur áhugi á skynáreitum.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica