Einhverfa er röskun í taugaþroska sem þýðir í þessu sambandi, að eitthvað hafi farið úrskeiðis í þroskun heila. Ekki er enn vitað að hve miklu leyti slík frávik í taugaþroska eiga sér stað fyrir eða eftir fæðingu. Að öllum líkindum hefst sú atburðarás oftast á fósturstigi, en getur haldið áfram eftir fæðingu. Þessi röskun á starfsemi heilans leiðir af sér ákveðin einkenni í hegðun sem geta haft mismunandi birtingarform eftir tíðni og alvarleika einkenna, en þau geta auk þess breyst með aldri.
Einkenni einhverfu koma einkum fram í félagslegu samspili og boðskiptum, en einnig í einhæfri, endurtekinni hegðun, sem getur í senn verið bæði sérkennileg og áráttukennd. Til þess að greinast með einhverfu þarf ákveðinn fjölda og styrk einkenna á þessum þremur einkennasviðum.

