Tengill við fjölskyldu
Þegar barni er vísað á Greiningarstöð fær fjölskyldan úthlutað tengli sem er tengiliður fjölskyldunnar við Greiningarstöðina. Tengillinn heldur utan um mál barnsins og er foreldrum og þjónustuaðilum til ráðgjafar. Þegar þess gerist þörf hefur tengillinn frumkvæði að myndun þjónustuteymis fyrir barnið og fjölskyldu þess.
Foreldrar og þjónustuaðilar geta leitað til tengilsins þegar þau eru í vafa um hvað eigi að gera eða hvert skuli leita með mál sem upp koma í tengslum við þjónustu við barn og fjölskyldu.

