Hverjir koma?
Þegar barni er vísað á Greiningarstöð með grun um röskun á einhverfurófi er því vísað áfram á einhverfusvið. Á sviðinu eru eftirfarandi starfsstéttir barnalæknir, félagsráðgjafi, talmeinafræðingur, ritari, sálfræðingur, sérkennari og þroskaþjálfi.
Hvað er gert?
Í greiningu felst þverfagleg athugun þar sem mismargar fagstéttir koma við sögu eftir atvikum. Oftast koma börnin með foreldrum sínum í byrjun viku og fá niðurstöður um það bil viku seinna. Í framhaldi af því er niðurstöðum skilað til þjónustuaðila í samráði við foreldra. Lögð er áhersla á samvinnu þeirra aðila sem hafa með höndum þjónustu við börnin sem koma til greiningar á sviðinu, t.d. með stofnun þjónustuteymis í kringum hvert barn. Sérfræðingar sviðsins fylgja þeim eftir yfir mislangan tíma, allt eftir fötlun, aldri og öðrum aðstæðum. Fyrir yngstu aldurshópana er það oftast leikskóli barnsins sem er vettvangurinn fyrir ráðgjöf. Auk foreldra og fagmanna sviðsins koma þar við sögu sérfræðiþjónusta sveitarfélaga, svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra, starfsmenn leikskólans og stundum fleiri.
Fræðsla og rannsóknir
Á sviðinu hefur þróast fræðsla sem tengist einhverfu. Þrjú til fjögur grunnnámskeið eru haldin á hverju ári um einhverfu og skyldar raskanir. Þá eru reglulega haldin almenn námskeið um meðferð og kennslu, auk sérhæfðari námskeiða sem tengjast þá ákveðnum einstaklingum eða ákveðnum viðfangsefnum. Það sama má segja um rannsóknir á sviðinu, þær tengjast flestar einhverfu og skyldum röskunum. Nefna má rannsóknir á faraldsfræði einhverfu, greiningartækjum fyrir einhverfu, stöðugleika og breytingum í þroska og hegðun á leikskólaárunum, árangri atferlisþjálfunar, áhrifum leikfélaga á félagslegt frumkvæði barna með einhverfu, fyrstu áhyggjum foreldra af þroska og hegðun og rannsóknir á hópum barna sem hafa fengið mismunandi þjónustu.

