Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

30.4.2009

Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eru þær leiðir sem notaðar eru til tjáskipta aðrar en talmálið. Það getur átt við um svipbrigði, bendingar, látbragð, tákn sem byggja á hreyfingum handanna svo sem táknmál heyrnarlausra eða tákn með tali (TMT), myndræn tákn svo sem Bliss og ýmiskonar myndir og myndakerfi svo sem PCS (Picture Communication symbols).

Óhefðbundin tjáskiptaleið getur komið í staðin fyrir talmálið eða sem uppbót með því talmáli sem fyrir er. Í sumum tilvikum er um varanlegt tjáskiptaform að ræða en stundum er aðeins um tímabundið ástand að ræða.

Þeir sem nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eru af einhverjum ástæðum ekki færir um að gera sig nægjanlega skiljanleg með tali. Orsakirnar geta verið margvíslegar og má þar nefna slys, sjúkdóma, hreyfihömlun, þroskahömlun, tauga- og vöðvasjúkdóma, einhverfu og heyrnarskerðingu.

Bæði börn og fullorðnir nota óhefðbundnar tjáskiptaleiðir.

 

Orð og hugtök

AAC – Augmentative and Alternative Communication. Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

ASK – Alternativ og supplerende kommunikasjon (norska) Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir       

AKK – Alternativ och kompletterende kommunikation (sænska) Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir     

SAK – Stöttet og alternativ kommunikation (danska) Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

ISAAC – International Society for Augmentative and alternative communication. Alþjóðleg samtök um óhefðbundnar tjáskiptaleiðir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica