Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Þjónustuteymi

26.6.2009

Þjónustuteymi er myndað í kring um hvert barn og fjölskyldu þess. Í teyminu eru foreldrar/aðstandendur, þjálfarar/stuðningsaðilar, deildarstjóri, leikskólastjóri og fulltrúi sveitarfélags/svæðisskrifstofu auk fulltrúa Greiningarstöðvar og öðrum sem koma að þjónustu við barnið og fjölskylduna. Þessir aðilar fylgja sameiginlegum markmiðum og miðla upplýsingum sín á milli. Þjónustuteymið hittist einu sinni til tvisvar á ári eftir að íhlutun hefst. Endurskoða þarf reglulega hverjir eru aðilar að þjónustuteyminu og hlutverk þeirra.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica