Ráðgjöf og eftirfylgd
Að jafnaði er eftirfylgd og ráðgjöf í höndum aðila utan Greiningarstöðvar í nærumhverfi barnsins, s.s. sérfræðinga sveitafélaga, sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla eða annarra sérfræðinga.
Eftirfylgd og ráðgjöf Greiningarstöðvar fer fram í samvinnu við sérfræðinga í nærumhverfi barnsins. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins kemur sérstaklega að þjónustu og ráðgjöf til lengri tíma vegna einstaklinga með óvenju flóknar eða sjaldgæfar fatlanir.

