Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Fagsvið einhverfu

Þegar barni er vísað á Greiningarstöð með grun um röskun á einhverfurófi er því vísað áfram á einhverfusvið.

Starfsfólk fagsviðs einhverfu

Einhverfusvid_small


Fagsvið einhverfu

Sigrun Hj

Sigrún Hjartardóttir

  • Starfsheiti: leikskólasérk. / einhverfuráðgjafi
  • Netfang: sighjart ( @ ) greining ( . ) is

Sigrún starfar á fagsviði einhverfu. Hún kemur að greiningum barna með grun um röskun á einhverfurófi og sinnir eftirfylgd og ráðgjöf til foreldra og fagaðila í leik- og grunnskólum. Sigrún hefur sérhæft sig í aðferðum skipulagðrar kennslu (TEACCH). Sigrún tekur þátt í fræðslustarfi á Greiningarstöð og kennir á námskeiðum um ýmsar leiðir í kennslu.

Menntun
M.Ed.-gráða við Kennaraháskóla Íslands, 2000. Rannsóknarverkefnið nefnist: Áhrif kennslu á getu barna með einhverfu til að hefja félagsleg samskipti við jafnaldra í leikskóla.
Starfsþjálfun í greiningu og kennslu barna með einhverfu við The University of North Carolina at Chapel Hill, Bandaríkjunum, 1992.
Nám í sérkennslufræðum frá Statens Spesiallærehögskole í Osló 1976-1978.
Leikskólakennarapróf frá Fósturskóla Íslands 1973.
Hefur sótt fjölda námskeiða og ráðstefna innan lands og erlendis um einhverfu og skyldar fatlanir.

Helstu störf
Leikskólasérkennari/einhverfuráðgjafi á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins frá 1998.
Stundakennari við Kennaraháskóla Íslands.
Hefur kennt á fjölda námskeiða um einhverfu hjá Umsjónarfélagi einhverfra, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, svæðisskrifstofum og fræðslumiðstöðvum víða um land o.fl.
Einhverfuráðgjafi við grunnskóla víða um land 1988-1998.
Deildarstjóri við sérdeild fyrir einhverf börn 1988-1998.
Fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélagi Íslands 1986-1988.
Sérkennari við Dalbrautarskóla (BUGL) 1978-1986.
Leikskólakennari/skólastjóri við ýmsa leikskóla á Íslandi og Noregi 1973-1976.

Annað
Höfundur handrits og umsjón með gerð fræðslumyndbands um einkenni einhverfu sem notuð eru á námskeiðum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Höfundur ásamt öðrum að Námskrá fyrir sérdeild fyrir einhverf börn í Digranesskóla (1994).
Stofnaði Einhverfuráðgjöfina –ÁS, ásamt Ásgerði Ólafsdóttur, 2001.
Þýddi CAT-kassann á íslensku ásamt Ásgerði Ólafsdóttur.
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica