Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Hvað er gert?

Í greiningu felst þverfagleg athugun þar sem mismargar fagstéttir koma við sögu eftir atvikum. Oftast koma börnin með foreldrum sínum í byrjun viku og fá niðurstöður um það bil viku seinna. Í framhaldi af því er niðurstöðum skilað til þjónustuaðila í samráði við foreldra. Lögð er áhersla á samvinnu þeirra aðila sem hafa með höndum þjónustu við börnin sem koma til greiningar á sviðinu, t.d. með stofnun þjónustuteymis í kringum hvert barn.

Sérfræðingar sviðsins fylgja þeim eftir yfir mislangan tíma, allt eftir fötlun, aldri og öðrum aðstæðum. Fyrir yngstu aldurshópana er það oftast leikskóli barnsins sem er vettvangurinn fyrir ráðgjöf. Auk foreldra og fagmanna sviðsins koma þar við sögu sérfræðiþjónusta sveitarfélaga, starfsmenn leikskólans og stundum fleiri.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica