Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Undirbúningur fyrir komu

30.4.2009

Hvíld

Þar sem athugun er krefjandi fyrir börnin þarf að huga vel að því að börnin fái næga hvíld í athugunarvikunni og borði vel áður en þau koma.

Hvað þarf að taka með?

Það getur verið gott að hafa eitthvað með til hressingar á milli tíma. Æskilegt er að koma með stuttbuxur í tíma til sjúkraþjálfara.

Lyfjagjöf

Foreldrar eru beðnir að breyta ekki lyfjanotkun barnsins fyrir komu á Greiningarstöð, þar með talið lyfjum vegna ofvirkni og hegðunarraskana.

Hjálpartæki

Þegar barn kemur til athugunar er mikilvægt að taka þau hjálpartæki með sem geta skipt máli við athugun, svo sem:

  • gleraugu og heyrnartæki,
  • innlegg, spelkur og  skó,
  • séraðlagaðan vinnustól ef við á,
  • ef barnið notar óhefðbundnar tjáskiptaleiðir þarf að koma með þau gögn sem því fylgja. 

Ef þið komist ekki

Ef fólk af einhverjum ástæðum kemst ekki í þá tíma sem ákveðnir hafa verið er mikilvægt að láta vita eins fljótt og hægt er.

Ef foreldrar hafa áhyggjur af einhverju eða vandamál koma upp, vinsamlega hafið samband.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica