Það fer eftir eðli fötlunar, aldri barnsins og þörfum hvaða sérfræðingar koma að athugun barns í hvert sinn.
Þegar komið er í athugun á Greiningarstöð situr barnið yfirleitt við borð hluta af athugunartímanum. Ef barnið notar hjálpartæki, svo sem vinnustól, er mikilvægt að hann sé með. Barnið vinnur hæfilega krefjandi verkefni og þau sem það geta svara spurningum. Stundum þarf barnið að sýna aðra færni (t.d. ganga, hlaupa og hoppa). Í sumum athugunum getur barnið þurft að fara úr fötum (t.d. hjá lækni eða sjúkraþjálfara) og hugsanlega þarf að vigta það og mæla.
Foreldrar fylgja nánast alltaf yngri börnunum í athuganir en þegar þau eru eldri er metið í hvert skipti hvort foreldrar koma með eða bíða á biðstofu. Oftast þurfa foreldrar að svara spurningum og rekja þroskasögu barnsins. Stundum er barnið með í slíkum viðtölum og þá er því boðið að leika sér á meðan. Í sumum viðtölum á barnið ekki að vera með og er það tekið fram á dagskránni.
Þegar barnið er í þjálfun annars staðar til dæmis hjá sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa eða talmeinafræðingi eru þeir stundum hluti af athugunarteymi barnsins.
Að auki er oftast beðið um upplýsingar frá skóla barnsins eða leikskóla þar sem gefnar eru upplýsingar um barnið svo sem stöðu þess í félagahópnum, sjálfshjálp og námsgetu.

