Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Fræðsla og rannsóknir


Fræðsla um röskun á einhverfurófi hér undir fræðsluefni

Á fagsviðinu hefur þróast fræðsla sem tengist einhverfu. Þrjú til fjögur grunnnámskeið eru haldin á hverju ári um einhverfu og skyldar raskanir. Þá eru reglulega haldin almenn námskeið um meðferð og kennslu, auk sérhæfðari námskeiða sem tengjast þá ákveðnum einstaklingum eða ákveðnum viðfangsefnum.

Sjá nánar um námskeið á næstunni hér undir námskeið

Það sama má segja um rannsóknir á fagsviðinu, en þær tengjast flestar einhverfu og skyldum röskunum. Nefna má rannsóknir á faraldsfræði einhverfu, greiningartækjum fyrir einhverfu, stöðugleika og breytingum í þroska og hegðun á leikskólaárunum, árangri atferlisþjálfunar, áhrifum leikfélaga á félagslegt frumkvæði barna með einhverfu, fyrstu áhyggjum foreldra af þroska og hegðun og rannsóknir á hópum barna sem hafa fengið mismunandi þjónustu.

Sjá lista yfir birtar rannsóknir og útgefið efni hér undir rannsóknir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica