Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Þroskahömlun

Þroskahömlun einkennist fyrst og fremst af frávikum í vitsmunaþroska og aðlögunarfærni. Við  greiningu á þroskahömlunar á Íslandi er stuðst við flokkunarkerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar ICD 10.  Þroskahömlun er metin með stöðluðum greindarprófum og mati á aðlögunarfærni. Samkvæmt þessu flokkunarkerfi er þroskahömlun skipt í 4 stig eftir alvarleika.

F70 Væg þroskahömlun, greindarvísitala 50-69

F71 Miðlungs þroskahömlun, greindarvísitala 35-49

F72 Alvarleg þroskahömlun, greindarvísitala 20-34

F73 Djúp þroskahömlun, greindarvísitala <20.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica