Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Þjónusta við 6-18 ára börn

 

Þjónusta fagsviðsins fyrir þennan aldurshóp byggir á þverfaglegri athugun á þroskastöðu, hegðun og líðan barnsins/unglingsins. Mat á Greiningarstöð krefst þess oft að ákveðinn tími líði frá frumgreiningu vegna ýmissa þátta svo sem aðstæðna barns og mælitækja sem mæla vitsmunaþroska. Aðkoma Greiningarstöðvar er metin sérstaklega fyrir hvert barn. Að lokinni athugun eru niðurstöður og tillögur að áætlun kynntar fyrir foreldrum og unglingum eftir því sem við á. Einnig er haldinn þjónustufundur með foreldrum og þeim aðilum sem koma að þjónustu við barnið svo sem frá skóla og sveitarfélagi. Eftirfylgd er höndum fagaðila í heimabyggð en sé þörf á frekari aðkomu Greiningarstöðvar er reynt að koma til móts við þær óskir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica