Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Þjónusta við 2-6 ára börn

 

Þjónusta fagsviðs þroskahamlana fyrir þennan aldurshóp byggir á hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar þar sem markmiðið er að ýta undir alhliða þroska barnsins. Börnum sem er í áhættu fyrir þroskahömlun er vísað í þessa þjónustu þegar fram hefur farið greining á vanda barnsins á heimasvæði. Mikilvægt er að unnið sé út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir varðandi þroskastöðu þar sem nauðsynlegt er að ákveðinn tími líði á milli þroskamælinga. Stofnað er þverfaglegt teymi þar sem foreldrar eru lykilaðilar ásamt öllum þeim sem koma að þjónustu við barnið. Mikil áhersla er lögð á samvinnu allra aðila og því mikilvægt að teymið hittist reglulega, t.d. á sex vikna fresti. Áhersla er lögð á að gerð sé einstaklingsnámskrá þannig að markmið séu mælanleg og unnt sé að fylgjast með framförum. Aðili frá Greiningarstöð er í teymi barnsins og kemur inn með ráðgjöf eftir þörfum. Endanleg greining þroskahömlunar er gerð í fyrsta lagi við 5 ára aldur en fram að því er mikilvægt að meta árangur íhlutunar og fylgjast vel með framförum, líðan og hegðun. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica