Þjónusta við 0-2 ára börn
Þjónusta á fagsviði þroskahamlana fyrir þennan aldurshóp byggir á hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar þar sem markmiðið er að ýta undir alhliða þroska barnsins. Mikil áhersla er lögð á náið samstarf við foreldra og aðra þá sem að umönnun barnsins koma en slíkt samstarf er forsenda þess að íhlutunin skili sem mestum árangri.Boðið upp á reglulegar heimsóknir barns og fjölskyldu á Greiningarstöð og einnig er farið heim til fjölskyldunnar. Tíðni heimsókna fer eftir þroska barnsins, aðstæðum og búsetu. Þegar barnið byrjar í leikskóla eða fær aðra sambærilega þjónustu er þjónusta fagsviðs þroskahamlana í formi ráðgjafar í samvinnu við fagaðila í heimabyggð.