Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Tengill við fjölskyldu

16.4.2009

Þegar barni er vísað á Greiningarstöð fær fjölskyldan úthlutað tengli sem er tengiliður fjölskyldunnar við Greiningarstöðina. Tengillinn heldur utan um mál barnsins innan Greiningarstöðvarinnar og er foreldrum og þjónustuaðilum til ráðgjafar t.d. eftir að athugun lýkur. Þegar þess gerist þörf hefur tengillinn frumkvæði að myndun þjónustuteymis utan um barnið og fjölskyldu þess.

Foreldrar geta leitað til tengilsins þegar þau eru í vafa um hvað eigi að gera eða hvert skuli leita með mál sem upp koma í tengslum við þjónustu við barn og fjölskyldu.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica