Börnum sem hafa fengið frumgreiningu sem bendir til þroskahömlunar eða alvarlegrar þroskaröskunar er vísað á fagsvið þroskahamlana. Einnig er þangað vísað börnum sem eru í áhættu fyrir alvarlegum þroskafrávikum eða aðalfötlun barns er óljós. Skipta má þjónustu sviðsins út frá aldri barnanna. Í fyrsta lagi fyrir börn á aldrinum 0 til 2ja ára, í öðru lagi börn 2ja til 6 ára síðan börn á aldrinum 6-18 ára. Einnig er tekið mið af öðrum þáttum, til dæmis stigi fötlunar og búsetu. Lögð er áhersla á samvinnu við fjölskyldu og fagaðila sem koma að þjónustu við barnið.
Fræðsla fyrir foreldra og fagfólk er mikilvægur þáttur í starfsemi sviðsins. Reglulega eru haldin námskeið um ýmis efni sem tengjast þroskahömlun og meðferðarleiðum, t.d. um heilkenni sem valda þroskahömlun, snemmtæka íhlutun og tákn með tali. Einnig er boðið upp á sérhönnuð námskeið þar sem leitast er við að aðlaga fræðslu að þörfum barns og þjónustuaðila. Þátttaka í rannsóknum á sviði þroskahamlanna er vaxandi þáttur í starfsemi sviðsins.
Þjónusta við 0-2 ára börn
Þjónusta á fagsviði þroskahamlana fyrir þennan aldurshóp byggir á hugmyndum snemmtækrar íhlutunar. Áhersla er lögð á samstarf við foreldra og nána aðstandendur barnsins sem og þjónustuaðila þegar það á við. Í byrjun er gerð þjónustuáætlun þar sem markmið íhlutunar og aðferðir eru skilgreindar. Þessi áætlun er endurskoðuð reglulega. Boðið upp á reglulegar heimsóknir barns og fjölskyldu á Greiningarstöð og einnig er farið heim til fjölskyldunnar. Myndað er þverfaglegt teymi fyrir hvert barn og valinn tengiliður sem heldur utan um þjónustuna. Foreldrar barnsins eru þátttakendur í teyminu. Tíðni heimsókna fer eftir eðli fötlunar, aðstæðum og búsetu. Þegar barnið byrjar í leikskóla eða fær aðra sambærilega þjónustu er þjónusta fagsviðs þroskahamlana í formi eftirfylgdar en önnur þjónusta er í höndum fagaðila í heimabyggð.
Heimaþjónusta
Snemmtæk íhlutun á Fagsviði Þroskahamlana felur í sér þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra og fer fram bæði á Greiningarstöð og á heimili.Æskilegt er að íhlutun geti farið að mestu leyti fram í eðlilegu umhverfi barnsins en rannsóknir benda eindregið í þá átt að þjónusta heim nýtist barninu og fjölskyldunni best. Börn eiga oft erfitt með að yfirfæra færni þannig að ráðgjöfin nýtist best þegar hún beinist að daglegu lífi á heimilinu, hægt er að vinna með þau leikföng sem barnið leikur sér jafnan með og veita allri fjölskyldunni ráðgjöf og stuðning.
Mikil áhersla er lögð á náið samstarf við foreldra og aðra þá sem að umönnun barnsins koma en slíkt samstarf er forsenda þess að íhlutunin skili sem mestum árangri.
Starfsmenn Greiningarstöðvar munu koma í heimsókn á heimili barnsins u.þ.b. tvisvar sinnum í mánuði í samráði við foreldra. Gert er ráð fyrir að hver heimsókn taki u.þ.b. eina klukkustund og mikilvægt er að þessi tími sé tekinn frá þannig að gott næði sé fyrir hendi.
Öllum fjölskyldumeðlimum er að sjálfsögðu velkomið að taka þátt en mikilvægt að þessi tími verði sem eðlilegastur fyrir barnið. Ekki er gert ráð fyrir neinum sérstökum undirbúningi af hálfu foreldra.
Þjónusta við 2-6 ára börn
Þeim börnum sem verið hafa í reglulegri þjónustu á Greiningarstöð fyrir 2ja ára aldur er fylgt eftir þegar þau hefja leikskólagöngu. Í byrjun er um þétta eftirfylgd að ræða þar sem fagaðili frá Greiningarstöð veitir ráðgjöf bæði inn í leikskólann og til foreldra. Eftir það er dregið úr tíðni heimsókna og gert ráð fyrir heimsókn/símtali í leikskólann einu sinni til tvisvar á ári fram að grunnskólagöngu. Lögð er áhersla á að foreldrar eða starfsfólk leikskólans hafi samband ef um afturför í þroska, breytingar í hegðun eða aðlögun er að ræða.
Í þjónustu við börn sem vísað er eftir að þau hefja leikskólagöngu er áhersla lögð á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar en gert er ráð fyrir að þjónustan við barnið fari fram utan Greiningarstöðvar, í leikskóla og í þjónustu annarra fagaðila. Þegar tilvísun berst á Greiningarstöð er skipaður tengill fyrir barnið og fjölskyldu þess og foreldrum boðið að koma í viðtal. Fyrir fjölskyldur á landsbyggðinni er einnig boðið upp á símaviðtal. Í þessu viðtali er farið yfir stöðu mála og þá þjónustu sem barnið fær, til að tryggt sé að barnið njóti þeirra réttinda og þjónustu sem frumgreining gefur tilefni til. Gert er ráð fyrir að þverfagleg athugun fari fram á Greiningarstöð ekki síðar en fyrir upphaf grunnskólagöngu.
Þjónusta við 6-18 ára börn
Þjónusta við börn á grunnskólaaldri felst í greiningu á þroskahömlun eða alvarlegum þroskaröskunum og ráðgjöf til fjölskyldu og þjónustuaðila í kjölfar greiningar. Þegar tilvísun berst, er myndað þverfaglegt teymi og valinn tengiliður sem heldur utanum athugunarferlið. Athugun fer yfirleitt þannig fram að barn og foreldrar koma daglega í eina viku á Greiningarstöð og í lok vikunnar er rætt við foreldra um niðurstöður. Eftir athugun er haldinn fundur með þjónustuaðilum, s.s. kennurum grunnskóla og öðrum fagaðilum sem koma að málum barnsins. Á þessum fundum er gert ráð fyrir þátttöku foreldra barnsins. Þá eru niðurstöður kynntar, þarfir barnsins ræddar og gerðar tillögur um úrbætur þegar þörf er á. Eftirfylgd er í höndum fagaðila í heimabyggð.

