Tákn með tali.
Tákn með tali (TMT) er tjáskiptaaðferð sem upphaflega var þróuð fyrir nemendur með mál- og þroskaröskun. Aðferðin byggir á einföldum hreyfitáknum sem notuð eru á markvissan hátt til stuðnings töluðu máli. Um er að ræða náttúruleg tákn s.s bendingar, látbragð og svipbrigði að viðbættum táknum úr táknmáli heyrnarlausra. Áherslan er lögð á að tákna lykilorð hverrar setningar. TMT nýtist fólki á öllum aldri sem hefur tal- og málörðugleika af öðrum orsökum en heyrnarleysi. Undanfarin ár hefur komið í ljós að aðferðin nýtist vel í fjölmenningarlegu umhverfi s.s í leikskólum og skólum. Aðferðin er málörvandi fyrir öll ung börn og því óhætt að hvetja foreldra og kennara ungra barna að nota TMT sem skemmtilegt málörvunartæki sem um leið hjálpar þeim sérstaklega sem á þurfa að halda.



Takk fyrir mig Ég vil borða Mér er kalt
Orð, hugtök:
TMT – Tákn með tali
TTT – Tegn til tale (danska)
TTT – Tecken till tal (sænska)
TSS – Tecken som stöd (sænska)
Key word signing (enska)
Baby signs (enska)
Signing for hearing (enska)
Tenglar
www.downs.is (snemmtæk íhlutun)
www.kommunikationsudvikling.dk
Ýmislegt um TMT er að finna inn á heimasíðum issac (sjá óhefðbundnar tjáskiptaleiðir)
Hér er slóð á vefsíðu með leiðbeiningum um hvernig þú setur inn kóðann til að fá Tákn með tali í iPhone/iPad/iPod Touch hjá þér.
http://www.innerfence.com/howto/redeem-free-promo-code-for-iphone-app-from-iphone-or-itunes
Kóðinn er: WMTK64AEWWNH
Efni og kennslugögn
Efni útgefið af Námsgagnastofnun:
Tákn með tali 2 - Orðabók með fræðslu. Höfundar: Sigrún Grendal Magnúsdóttir og Björk Alfreðsdóttir. Teiknari táknmynda: Sigurborg I. Sigurðardóttir
TMT tölvuforrit - Forritið inniheldur þau tákn sem koma fyrir í TMT 2. Höfundur: Indriði Björnsson
Námskeið á vegum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins:
Tákn með tali – grunnnámskeið. Opin námskeið auglýst hér.
Tákn með tali – framhaldsnámskeið. Opin námskeið auglýst hér.
Sömu námskeið eru einnig haldin eftir þörfum og eftirspurn. Athygli er vakin á því að þau námskeið er hægt að sérsníða sérstaklega að þörfum þátttakenda.
Tákn með tali – kynning fyrir foreldra og fjölskyldur skjólstæðinga GRR. Um er að ræða styttri námskeið sem haldin eru á GRR og sérsniðin að hverju barni.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin er á www.greining.is, í síma 5108400 og á netfangi fraedsla@greining.is
Yfirfarið í des 2010, Sigrún Grendal Magnúsdóttir

