Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Fagsvið þroskahamlana

Þangað er vísað börnum sem hafa fengið frumgreiningu sem bendir til þroskahömlunar.

Starfsfólk fagsviðs þroskahamlana

Throskahamlanasvid_small

 


Fagsvið þroskahamlana

Helga Kristin

Helga Kristín Gestsdóttir

  • Starfsheiti: iðjuþjálfi
  • Netfang: helgakristin ( @ ) greining ( . ) is

Helga Kristín starfar sem iðjuþjálfi á Þroskahömlunarsviði. Helstu störf hennar felast í mati á færni barna við þau daglegu viðfangsefni sem börn vilja og þurfa að leysa af hendi er varða eigin umsjá, nám og leik og tómstundaiðju. Einnig að meta þætti í umhverfi sem hafa áhrif á færni og þátttöku barna. Auk þess felur starf hennar í sér ráðgjöf og eftirfylgd barna með þroskahömlun ásamt samstarfi við foreldra og fagmenn annarra þjónustustofnana. Hún er í barnsburðarleyfi.

Menntun
B. Sc. próf í iðjuþjálfunarfræði frá Háskólanum á Akureyri, 2005.
Þjálfunar- og réttindanámskeið um matstækið Assessment of Motor and Process Skills (AMPS) 2008.

Helstu störf
Iðjuþjálfi á Þroskahömlunarsviði frá október 2009.
Iðjuþjálfi á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins í Fannborgarteymi – átaksverkefni , 2007- 2009.
Ráðgjafi í málefnum fatlaðra barna hjá Félagsþjónustu A-Húnvetninga, 2005-2007.
Deildarstjóri í dagvist fyrir fatlaða, 2005-2007.
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica