Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Undirbúningur fyrir komu

Þegar barn/unglingur kemur til athugunar á Greiningarstöð er mikilvægt að hafa eftirfarandi atriði í huga

Hvíld

Þar sem athugun er krefjandi fyrir börnin er mikilvægt að þau fái næga hvíld í athugunarvikunni.

Lyfjagjöf

Foreldrar eru beðnir að breyta ekki lyfjanotkun barnsins fyrir komu á Greiningarstöð, þar með talið lyfjum vegna ofvirkni og hegðunarraskana.

Hvað þarf að taka með?

Þegar barn kemur til athugunar er mikilvægt að taka með hluti sem skipta máli við athugun svo sem gleraugu og heyrnartæki.

Óskir um breytingu á dagskrá

Ef  fjölskylda af einhverjum ástæðum kemst ekki í þá tíma sem lagðir hafa verið til í dagskrá er mikilvægt að láta vita á Greiningarstöð í síma 510-8400.

Ef spurningar vakna

Ef spurningar vakna hjá foreldrum varðandi athugun er þeim bent á að hafa samband við tengil barnsins en nafn hans kemur fram á dagskránni.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica