Leikskólaaldur
Þegar komið er í athugun á Greiningarstöð þarf barnið að sitja við borð hluta af athugunartímanum og leysa verkefni. Barnið þarf að svara spurningum og leysa ýmis fínhreyfiverkefni, einnig getur það þurft að t.d. hlaupa eða hoppa. Í sumum athugunum getur barnið þurft að fara úr fötum, t.d. hjá lækni eða sjúkraþjálfara og oftast eru þau viktuð og mæld. Reynt er að hafa athugunina á þeim tíma dags þegar sem barnið er best upplagt en oftast er það fyrrihluta dags eða eftir að barnið hefur hvílt sig eftir hádegið. Stundum er gott að hafa meðferðis eitthvað smálegt að borða eða drekka, sérstaklega ef barnið hefur ekki borðað góðan morgunverð.
Foreldrar leikskólabarna eru yfirleitt viðstödd allar athuganir, það er hins vegar metið í hvert sinn hvað hentar best foreldrum og barni. Oftast þurfa foreldrar að svara spurningum og rekja þroskasögu barnsins og stundum er barnið með í slíkum viðtölum. Það er hins vegar tekið fram í dagskránni ef ekki er gert ráð fyrir að barnið sé með í tímanum. Börnin eru t.d. ekki með þegar niðurstöðum er skilað til foreldra. Ef fjölskyldan er búsett á landsbyggðinni og á erfitt með að fá pössun fyrir börnin sín er mikilvægt að koma þeim upplýsingum til tengils með góðum fyrirvara til að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir.
Þegar barnið er í þjálfun annars staðar, til dæmis hjá sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa eða talmeinafræðingi er óskað eftir upplýsingum frá þeim. Einnig er óskað eftir upplýsingum frá leikskóla barnsins (bæði skriflegum upplýsingum og einnig myndbandi) varðandi t.d. stöðu barnsins í félagahópnum, sjálfshjálp, leikfærni og fleira. Leikskólakennarar/þroskaþjálfarar svarar einnig listum varðandi hegðun og líðan samsvarandi þeim listum sem foreldrar svara síðan í athuguninni.

