Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Grunn-og framhaldsskólaaldur

Foreldrar fylgja ávallt börnum/unglingum sínum í athuganir á Greiningarstöð. Foreldar eru ávallt viðstaddir athugun læknis en í öðrum athugunum svo sem hjá sálfræðingi og/eða iðjuþjálfa er það undantekning að foreldri sé viðstaddur.  Foreldrar fara í ýmis viðtöl, þurfa að svara spurningarlistum og rekja þroskasögu barnsins/unglingsins. Í sumum viðtölum á barnið/unglingurinn ekki að vera með og er það tekið fram á dagskránni. Þegar barnið/unglingurinn er í þjálfun annars staðar til dæmis hjá sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa eða talmeinafræðingi eru upplýsingar frá þeim hluti af athugun þess. Ávallt er beðið um upplýsingar frá skóla barnsins, stöðu þess í félagahópnum, sjálfshjálp og námsgetu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica