Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Greining

Greining alvarlegra þroskafrávika er margþætt. Eftir að grunur um frávik í þroska barns hefur vaknað, er leitað formlegrar staðfestingar á frávikum í þroska þess með frumgreiningu. Reynist grunur á rökum reistur, er leitað eftir orsökum, eðli og umfangi vandans og hvaða þýðingu hann hefur fyrir barnið til framtíðar. Slík greining er jafnframt grundvöllur margvíslegrar íhlutunar til að auka getu barnsins og horfur til framtíðar.

Frumgreining fer fram hjá ýmsum sérfræðingum og stofnunum. Orsakagreining fer að jafnaði fram innan heilbrigðiskerfisins, en greining á eðli og umfangi alvarlegra þroskafrávika er meginhlutverk Greiningarstöðvarinnar.

Nánar um greiningu og þverfaglegt samstarf



Þetta vefsvæði byggir á Eplica