Hvíld
Þar sem athugun er krefjandi fyrir börnin þarf að huga vel að því að börnin fái næga hvíld í athugunarvikunni og borði vel áður en þau koma.
Hvað þarf að taka með?
Það getur verið gott að hafa eitthvað með til hressingar á milli tíma. Æskilegt er að koma með stuttbuxur í tíma til sjúkraþjálfara.
Lyfjagjöf
Foreldrar eru beðnir að breyta ekki lyfjanotkun barnsins fyrir komu á Greiningarstöð, þar með talið lyfjum vegna ofvirkni og hegðunarraskana.
Hjálpartæki
Þegar barn kemur til athugunar er mikilvægt að taka þau hjálpartæki með sem geta skipt máli við athugun, svo sem:
- gleraugu og heyrnartæki,
- innlegg, spelkur og skó,
- séraðlagaðan vinnustól ef við á,
- ef barnið notar óhefðbundnar tjáskiptaleiðir þarf að koma með þau gögn sem því fylgja.
Ef þið komist ekki
Ef fólk af einhverjum ástæðum kemst ekki í þá tíma sem ákveðnir hafa verið er mikilvægt að láta vita eins fljótt og hægt er.
Ef foreldrar hafa áhyggjur af einhverju eða vandamál koma upp, vinsamlega hafið samband.

