Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Samstarf við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga (áður Sjónstöð Íslands)

Eftirfylgd við blind og sjónskert börn.

Sérhæfð ráðgjöf og eftirfylgd við blind og sjónskert börn er veitt frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Greiningarstöð sinnir einnig ráðgjöf og eftirfylgd fyrir hluta þessa hóps. Samstarf er um þjónustu þessara stofnana.

Samkvæmt samstarfssamningi frá árinu 2005 er gert ráð fyrir að Greiningarstöð komi að þjónustu allra blindra barna og einnig sjónskertra barna sem eru með viðbótarfatlanir. Stefnt er að reglulegum samráðsfundum þar sem verkaskipting milli stofnananna er m.a. rædd. Leitast er við að þverfagleg greining liggi fyrir við mikilvæga áfanga í lífi barnsins svo sem við upphaf leikskóla- og grunnskólagöngu.

Athugun á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fer yfirleitt fram á sömu tímamótum og sé barnið búsett utan höfuðborgarsvæðisins er reynt að hafa athuganir á Greiningarstöð og Þjónustumiðstöðinni í sömu vikunni. Niðurstöður eru sendar milli stofnana og samráð er haft um að kynna þær fyrir foreldrum og þjónustuaðilum.

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica