Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Tengill við fjölskyldu

Þegar barn tengist fagsviði hreyfi- og skynhamlana er tilgreindur tengill innan sviðsins, sem verður tengiliður fjölskyldunnar við Greiningarstöðina. Tengillinn sér um að halda utan um mál barnsins innan Greiningarstöðvarinnar. Hann undirbýr fundi sem haldnir eru með foreldrum og þjónustuaðilum eftir að athugun lýkur. Tengill hefur auk þess umsjá með eftirfylgd barnsins á milli athugana. 

Foreldrar geta leitað til tengilsins þegar þau eru í vafa um hvað eigi að gera eða hvert skuli leita með mál sem upp koma í tengslum við þjónustu við barn og fjölskyldu. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica